29.7.2008 | 23:54
Ferðasaga....
Er að möglast við að skrifa ferðasöguna til HM Englands.... byrja hér að fyrstu metrunum og svo verður framhald
Frábærir ferðafélagar í stafrófsröð: Eldhuginn Elísabet, Eðalgrísinn Emil, Guðdómlega Guðbjörg, Gæskurinn Guðmundur, Ofurfrændi Orri með henni Mér á ferð.
LAUGARDAGUR 14. jÚNÍ, 2008.
Áfangi dagsins: Hafnarfjöður - Keflavík - Stansted - Dover - Lilleborne.
Ofurfrændi hringdi á föstudagskvöldinu til að tjékka almennilega á því hvenær væri nú brottför. Nú ég tjáði manninum að gott væri að vera mættur í Stekkjarhvamminn klukkan 5. Það myndi nú alveg duga. Við hjónaleysa Gæskurinn og Ég vöknuðum klukkan hálf til að vera tilbúin á ofurbílnum til að taka farþega með. Nú nú þegar búið var að maskara augnhárin á öðru auganum þá hringir síminn upp úr þurru...."....hin Guðdómlega var á línunni, móð og másandi, næstum öskrandi...við erum lögð af stað!!!" Ha segi ég eins og belja í svínahóp sem er að uppgvöta að hún hafi týnt sínum stofni. En klukkan er bara 10 mínútur í?!!!!!????!!! (augabrúnirnar fór upp í hárrót af undrun). Hin Guðdómlega svarar: "já en við erum lögð af stað, Ofurfrændi mætti aðeins fyrr og er á miklum hraða hér á brautinni...tja hárið á mér til að mynda er í lóðréttri stellingu núna"......Ég: ok ok ok við af stað, öskra á Gæskinn að drífa sig drífa sig drífa sig.
Nú nýji ofurbílinn lá vel á brautinni, lítil umferð og þægilegur ökutúr. Ég hafði náttúrulega dressað mig upp fyrir flugstöðina, er dálítð gamaldags í mér þegar kemur að erlendisförum, vil vera í mínu fínasta pússi, mjög hátíðleg. Mér finnst það nokkuð hátíðlegt að fara til útlanda svo ég var í pilsi og á pinnum. Þegar ég mætti á svæðið voru systur mættar í röðina.....humm en ekki alveg rétta röð. Eldhuginn og sú Guðdómlega voru náttúrulega í Icelandair röðinni enda hafa þær aldrei ferðast á verkamannafargjaldi hjá expressaranum og þurfti ég að byrja á því að húrra þeim úr röðinni í þá næstu. Innritun fór áfallalaust fram. Nú svo þegar við erum komin inn í flugstöð fór ég að heyra raddir þess eðlis að það væri búið að seinka fluginu...humm ég fór náttúrulega að bera saman upplýsingar á flugmiðanum og skjánum og komst að því að fluginu hefði víst ekkert verið seinkað heldur hafði mér bara misminnt hvenær flugvélin ætti að taka af stað...humm ekki í fyrsta skiptið og ekki í það síðasta svo við áttum semsagt 2 góða tíma saman í Leifi fyrir brottför. Ekki slæmt. Ég fékk reyndar illt auga frá systrunum....þar sem þær vöknuðu klukkan 4:45 til að eiga 15 mín fyrir brottför en þá var Ofurfrændi byrjaður að baka á dyrnar og rusluðust þær út á mettíma. Ég lái þeim því ekki að vera í pilsi og á pinnum
þar sem þær rétt náðu að tannbursta sig en ég er sem fegin að þær voru ekki á náttbrókunum.
Nú svo þegar líða tekur á tvo tímana gerist minn Gæskur órólegur eins og alltaf í utanlandsferðum enda búið að kíta dálítið um hvenær er hentugt að vera mættur við inngang í flugvélina. Þar erum við að tala um 30 mín versur 10 mín. Mín rök....ég nenni ekki að bíða í röð í 20 mín fyrir framan flugvélan, hans rök...þú verður skilin eftir ef þú mætir of seint
...hum held ekki.
Nú þegar það dróg verulega að flugtíma þá fórum við að ruslast af stað, gæskurinn orðinn grumpí yfir seinaganginum, en þá átti reyndar eftir að fara í bókabúðina. Ég er reyndar alltaf frekar fljót að renna þar í gegn, veit hvar krossgátublöðin og Sudoku eru, en sama er ekki hægt að segja um Eldhugann...hún vildi endilega fara að velja bók handa Eðalgrísnum. Hummmmmmmm það tók ekki skamman tíma heldur frekar langan og endaði þannig að við vorum síðastar inn í vél, sem betur fer vorum við búin að kaupa sæti fremst í vélinni, því það horn- og illa auga sem við fengum frá þeim sem maður sá augun í var ekki þægilegt. En gæskurinn hættir alltaf að vera grumpí um leið og hann er sestur í vélina svo við tók skemmtileg flugferð þar sem GRAMIN sagði okkur alla leiðina hvar við værum, á hvaða hraða, hversu margir hnútar væru í loftinu, frjókornamagn, fjöldi geimvera í nágrenninu og svo framvegis.
Nú svo kom að lendingu. Loksins.
Lentum náttúrulega í góðum hita og þegar út úr flugstöð var komið var hafist handa við að leita að Europcar skúrnum. Fundum bílinn sem reyndist vera Huyndai minivan sem var bara fínn. Á bílastæðinu tók nú við fataskipti þar sem ég svissaði úr pínupilsi og pinnum yfir í þægileg ferðaföt í samræmi við hitann. Nú lá leið okkar frá Stansted til Dover þar sem skoða átti Dovercastle. Við vorum dálítið smeik um að lenda í sultu á M25 sem er hringurinn í kringum London en því var ekki að heilsa þannig að ferðin til Dover fór nokkuð vel fram og án mikilla tafa. Ferðin tók um 2 tíma til Dover og GARMIN leiddi okkur beint að Dover Castle.
Þar voru þetta merka mannvirki skoðað, byrjuðum reyndar á því að fara inn á kaffihús á svæðinu og svældum samlokum og kökum í okkur en svo var farið í skipulagða skoðunarferð inn í fjallið en þar var að finna lokað birgi langt inn í fjallið sem búið var til í tilgangi stríðsrekstrar. Þar var sjúkrahús, radíosamskiptamiðstöð, vistarverur hermanna og fleira og fleira og afskaplega athyglisvert að sjá. Ótrúlegt líka að sjá í Dover er eingöngu innan við 20 mílur til Frakklands styðstu leið og þar sem skyggni var gott sáum við yfir til meginlandsins.
Þetta tók nú lungað úr deginum he he he þannig að nú skyldi halda til Lilleborne til að finna gistiheimilið sem búið var að panta gistingu fyrir nóttina og eitthvað í gogginn. Það tók ekki nema um 30 mínútur að komast þangað og næstum því einn megaárekstur en á leiðinni út úr Dover var einhver ökumannssauður næstum búinn að svína inn i hliðina á okkur, örugglega ferðamaður 
Komust svo til Lilleborne sem er pínulítið þorp og yndislegt, eins og þau gerast best. Pöbbinn var lokaður, opnar bara þegar eigandinn á nægilega mikið cash til að fara út í supermarkað og kaupa bjór til sölu, en þó nóttina áður hafði ökumaður keyrt inn í stofu hjá einum húseiganda við aðalgötuna en göturnar er vart fleiri en ein. Það vantað eitt horn á húsið, frekar skonið á sjá. Er ekki alveg viss um að þetta hús hefði þolað einn suðurlandsskjálfta þar sem múrsteinarnir hrundu eins og spilaborg við höggið.
Gistum hjá yndislegu fólki á gistihúsinu "The pioneers", mjög snyrtileg herbergi þar sem eigendurnir bjuggu í sama húsi. Þau bentu okkur á að snæða í næsta þorpi sem var um 5 mín. akstur frá Lilleborne á krá sem heitir The Rose´s og það var bæði mjög vinalegt og bara fjandi góður matur miðað við pöbbamat. Við létum slag standa og það reyndist vera rétt. Komum svo aftur til Lilleborne og fengum okkur bjór hjá vertunum og viti menn þau settust niður með okkur og fengu sér bjór okkur til samlætis. Spjölluðum við þau í dágóða stund en svo fóru þreyttir ferðalangar að týnast upp á herbergi hver af öðrum.
FRAMHALD Á NÆSTUNNI...............
SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ, 2008
Lilleborne - Portsmount - Salisbury - Bath
Bloggar | Breytt 30.7.2008 kl. 00:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.7.2008 | 01:50
Betra er seint en Al.......Gore
Jæja nú er ég í þriðja skiptið að byrja á þessu bloggi þar sem ég hefi í hin tvö skiptin komið við músina eitthvað óvart og allt út. Búin að skrifa þvílíkar ræður og allt fyrir bí.
Reyndar er ég núna að horfa á Kastljósið endursýnt þar sem Sigursteinn Másson mun hafa farið á skutlu að hvalveiðibáti til að mynda drápið.... hann ku vinna fyrir einhver "fjandans" náttúruverndarsamtök sem eru að mínu mati standa ekki undir nafni. Náttúruverndarsamtök sem taka einn stofn og vilja friða hann en huga ekki að jafnvæginu í náttúrunni hljómar dálítið gruggurt í mín eyru... hvað með það magn sem hvalurinn étur og afhverju á að friða einn stofn sem er ekki í útrýminingarhættu frekar en annan stofn... ég bara spyr??? Hafa hvalveiðar skaðað þær þjóðir sem þær stunda, reyndar undir miklu eftirliti og höftum? EEE-nei. Þrátt fyrir hótandir alþjóðasamfélagsins? EEE-nei. Þetta er bara í nösunum á lopapeysunum.
Náttúruverndarsinnar. Það er eitt. Hver er náttúruverndarsinni og hver ekki. Er semsagt ég ekki náttúruverndarsinni að hafa rafmagn og vatn í krana heima hjá mér???? Er ég náttúrverndarsinni þar sem 99,9% af sorpinu frá mér er urðað???? Er ég ekki náttúruverndarsinni af því að mig langaði ekki rassgat á tónleika með Björk og Vælurós? Frænka mín kom í heimsókn og fékk lánaða lopapeysu til tónleikafararinnar....ég hefði getað búið til svanakjól á hana ef fyrirvari hefði verið gefinn. Ætli Björk flokki ruslið sitt þegar hún kemur til Íslands? Notar hún rafmagn sem er framleitt með tilstuðlan virkjana?
Ég keyri bíl og menga, ég nota bensínsáttuvél og menga, ég borða mjólkurvörur og bolakjöt og dýr menga, það er alveg sama hvar mig ber niður ég menga eða er sóði. Ruslið mitt er tekið og urðað... er það ekki mengun??? Ég borga fyrir það :-). Virkjum????
Virkjum??? Já, virkjum en veljum. Ég tel að við höfum um margt að velja við Íslendingar þegar kemur að þeim málum. Auðvitað er búið að leggja mikinn kostnað af "greitt með okkar peningum" í athuganir á svæðum sem ekki eru allir sammála um að virkja. En svo verður að vera. Virkjum með vitund. Sleppum þeim perlum sem við eigum og almenningur þekkir upp að vissu marki. Sem dæmi, allt varð vitlaust þegar Kárahnjúkavirkjun var samþykkt. Ómar flaug um allt og sýndi okkur öll gersemin sem færu undir flæmi. Þjóðfélagið fór á hvolf. Að fara að granda þessarri perlu...... ráðherrar og söngfuglar mættu á staðinn...sem höfðu reyndar gefið yfirlýsingar áður....vó á að granda þessu????
Mín spurning er: Afhverju má ekki virja svæði sem innan við 0,5 til 1% landsmanna hefur séð eða ætlar sér að skoða? Það var raunin með Kárahnjúka. Jú nú er þorri þjóðarinnar búinn að fara upp á hálendið upp á Fljótsdal...ekki vegna náttúrunnar heldur vegna framkvæmdanna. Hvað væru margir af þeim búnir að fara um þessar slóðir ef ekki?
Olía og aðrir varmagjafar að þrotum komnir.
Málið er að við "OLL" ekki bara Íslendingar heldur alþjóð verðum að fara að gera okkur grein fyrir því að sú orka sem við notum í lúxorinn í dag er að þrotum komin. Rafmagn og vetni er framtíðin, sem er framleiðsla ekki auðlind. Við Íslendingar erum í kjörstöðu þegar kemur að þessum þáttum og við þurfum að vera skynsön núna í byrjun tuttugstu og fyrstu aldarinnar og ákveða framtíðina ekki morgundaginn. Við þurfum að virkja og framleiða. En við eigum ekki að virkja hvar sem er. Við eigum að velja á hlutlausan hátt, ekki pólitískan hátt, hvar við eigum að virkja. Við eigum líka að selja rafmagnið okkur til hæstbjóðanda!!! ekki semja við álrisa á margfaltlægra verði heldur en neytendur á íslandi eru að greiða eins og tíðkast. Við eigum að vera sjálfstæð!!!!!!!
jæja nóg komið af grömpÍ
Adios, gamla reisti sig úr hisminu........
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.1.2008 | 10:30
Áramótaheit 2008
Ég setti mér áramótaheit þetta árið eins og öll hin en ákvað að vera í hófværari kantinum í ár! Áramótaheitið mitt er að stofna nýja bloggsíðu og skrifa um dagsins málefni þegar tími gæfist. Í þessu heiti er að sjálfssögðu dulið heit þ.e. að láta þetta ár ekki einkennast af of mikilli vinnu þannig að tími væri nú í annað og skemmtilega.
En það er orðið svo langt síðan ég bloggaði að ég kann það ekki lengur..... :-)
Árið byrjar vel, leggst vel í kellingu þó svo að við hjónaleysin séum heimilislaus þessa stundina þar sem Gummi afhenti sína íbúð í gær. En við búum á hótel Mömmunum sem er held ég ein besta vistavera í heimi en það fer nú vonandi að styttast í afhendingu á slotinu og við getum farið að bretta upp ermarnar og látið slag standa. Það er samt dálítið fyndið að búa í tösku og bíl.
Adios amigos :-)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Regína Fanný Guðmundsdóttir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.1.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 0
- Frá upphafi: 428
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 0
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

